Fundur Jörfa nr. 809
18.10.2021Forseti setti fund kl.18.00 og bauð félaga og gest velkomna til fundar.
Ræðumaður kvöldsins var Helgi Pétursson formaður LEB.
Eftir framsögu Helga sem var fróðleg í alla staði voru reikningar félagssjóðs og styrktar sjóðs lagðir fram og ræddir, voru þeir síðan bornir upp og samþykktir einróma. Þá var fjárhagsáætlun komandi starfsárs lögð fram og samþykkt.
Í tilefni af níræðs afmæli sínu þá gaf Leifur Ásgrímsson Kiwanisklúbbnum Jörfa myndalega fjárhæð til styrktar fátækum börnum í Hjálmaverkefni Jörfa.
Fundurinn var haldin í Náðhúsinu Nauthólsvegi 100 og verða fundir Jörfa haldnir þar í vetur.