Jólafundur og konukvöld
15.12.2018Jólafundur Jörfa haldinn á Grandhótel 14.12.2018. Forseti setti fund kl 19.05 og bauð félaga,eiginkonur og gesti velkomna á jólafund Jörfa. Þetta væri fundur númer 780
Góð mæting var á jólafundinn. Mættir voru 18 félagar og 23 gestir
Fundurinn hófst með jóla borðhaldi .
Tónlistahópur frá Suzuki skólanum fluttu jólalög og kom öllum í jólaskap með fallegum fiðluleik .
Karl Matthíasson prestur Grafarholti Guðríðarkirkju hélt hátíðarræðuna .
Félagi okkar hann Friðjón fór með gamanmál og fór á kostum eins og honum einum er lagið .
Fundi slitið kl 21.40