Sviðaveisla 2015
17.10.2015Sviðaveisla Jörfa var haldin í dag 17.október. Jörfi er ríkur af duglegum félögum sem vinna sviðin sjálfir frá grunni og liggur mikil vinna í undirbúningi. Í dag fengu Jörfafélagar , eiginkonur og stuðningsmenn Jörfafélaga að bragða á herlegheitunum í Baðstofunni Prestastíg 7.
Friðjón Hallgrímsson bauð gesti velkomna og var hann í góðum gír eins og ævinlega. Það var samhljóma álit gesta að vel hafi tekist til með þessa sviðaveislu. Jörfafélagar færa öllum er styrktu þetta bestu þakkir en ágóðinn rennur til Langveikra barna.
Þessir heiðursmenn báru þungann af sviðaveislunni í ár. Svanberg
Jón Jakob,Friðrik og Kristján