Félagsmálafundur Jörfa
20.10.2014Þetta var félagsmálafundur Jörfa og fyrsti fundur er Jörfi heldur í Kiwanis salnum að Bíldshöfða. Mættir voru 25 félagar og á fundinum voru reikningar félagsjóðs og styrktarsjóðs fyrir síðasta starfsár samþykktir svo og fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár. Forseti Friðjón Hallgrímsson afhenti öllum nefndarformönnum skipunarbréf.