Andlát
10.06.2014Það er skammt stórra högga á milli í Jörfa, aðeins mánuður síðan félagi okkar Guðmundur Jónsson féll frá 7.maí s.l. Nú er látinn annar Jörfafélagi, Bjargmundur Sigurjónsson, hann lést í Reykjavík á Hvítasunnudag 8.júní 2014. Bjargmundur gekk í Jörfa í janúar 1990 og var alla tíð öflugur Kiwanismaður. Hann var forseti Jörfa 1996-1997 og gegndi fleiri embættum. Hann var kosinn fyrirmyndarfélagi Jörfa 2000-2001 og var sæmdur silfurstjörnu Kiwanis fyrir störf sín í Jörfa. Eftirlifandi eiginkona Bjargmundar er Anna Fanney Arnbjörnsdóttir og sendum við henni samúðarkveðjur.