Jörfi styrkir Lækjarás
01.02.2013
Í gær afhenti Jörfi dagþjónustunni Lækjarás i iPad tölvu. Forseti Jörfa Gunnar Kvaran, formaður fjáröflunar og styrktarnefndar Pétur Sveinsson ásamt Baldri Árnasyni og Haraldi Finnssyni mættu þar og var vel tekið af starfsfólki og vistmönnum. Forstöðukona Lækjaráss Guðbjörg Haraldsdóttir sagði frá starfseminni og sýndi okkur staðinn. Lækjarás er dagþjónusta fyrir fullorðið fólk með þroskahömlun og er einn af þeim stöðum sem Styrktarfélagið Ás rekur.