Jólafundur styrkveiting og gullstjarna
15.12.2012
Kiwanisklúbburinn Jörfi hélt jólafund sinn föstudaginn 14.desember í Ásbyrgi , sem er salur á Park-Inn hótelinu. Það var vel mætt að venju og um fimmtíu félagar, eiginkonur og gestir gæddu sér á réttum af frábæru jólahlaðborði og áttu saman ánægjulega kvöldstund .
Forseti Jörfa Gunnar Kvaran afhenti svo Jóni Jakob Jóhannessyni gullstjörnu styrktarsjóðs Kiwanis, en með því vill klúbburinn þakka Jóni mikið og gott starf í þágu Jörfa, eiginkonu hans var svo færður blómvöndur. Ingi Viðar Árnason fór með gamanmál og kveðskap og svo fengu allar konur „í skóinn“.