Fundurinn var haldinn 4.maí og hófst kl 19.30 Mættir voru 21 félagi ásamt eiginkonum.
Pétur Sveinsson kynnti stjórn klúbbsins fyrir starfsárið 2012-2013 Hafsteinn Sigmundsson féhirðir kynnti fjárhagstöðu klúbbsins. Uppgjör á Engjateigi 11 er á næsta leiti að sögn Hafsteins. Ingólfur Helgason formaður skemmti og ræktunarnefndar sagði frá fyrirhugaðri gróðursetningarferð 6.júní og sumarferðinni að Nesi 10-12 ágúst. Ævar Breiðfjörð var heiðraður með Silfurstjörnunni fyrir frábært starf í þágu klúbbsins. Þá var nokkrum eiginkonum þeirra klúbbfélaga sem átt höfðu stórafmæli á starfsárinu færðir blómvendir. Jörfafélagar og eiginkonur áttu gott kvöld saman.
GHG