Jólafundur Jörfa var haldinn 17. des.2010 í Ýmirs húsinu. Séra Þór Hauksson flutti jólahugvekju eins og undanfarin ár. Ingi Viðar var með upplestur.
Kiwanisklúbburinn Jörfi færði Umhyggju félag langveikra barna kr.200.þús. styrk sem var ágóði af sviðaveislu Jörfa í haust. Tveir félagar urðu sjötugir þeir Bjargmundur Sigurjónsson 2.des.og Sigursteinn Hjartarson 21.nóv. Jörfafélagar færðu þeim gjafir í tilefni þess og eiginkonum þeirra blómvönd.
Þá fékk Friðrik Hafberg silfurstjörnu fyrir frábært starf í Jörfa og Kiwanishreyfingunni.GHG