Fyrirmyndarklúbbur

12.09.2010
Í lokahófi 40.Umdæmisþings Kiwanis hlaut Jörfi ásamt 6 öðrum klúbbum útnefninguna „Fyrirmyndarklúbbur“.
Þá fékk Jörfi afhentan veglegan bikar sem umdæmisstjóri Óskar Guðjónsson hefur gefið og veittur var nú í fyrsta sinn fyrir „Áhugaverðasta fjáröflunarverkefnið“. Það var fyrir Sviðaveislu Jörfa.
Jörfafélagar halda nú í þriðja sinn sviðaveislu sína í hádeginu á fyrsta vetrardag, þann 23.október n.k. og verður hún í Breiðfirðingabúð.