Sviðaveisla 2009
24.10.2009Hin árlega sviðaveisla Jörfa var haldin laugardaginn 24.okt. í Kiwanishúsinu Engjateig 11.
Mæting var mjög góð þrátt fyrir einhver forföll vegna svínaflensu.
Gunnar Kvaran félagi í Jörfa spilaði á harmonikku áður en veislan var sett.
Baldur Árnason forseti Jörfa setti veisluna.
Ræðumaður var Gísli Már Gíslason próferssor, einnig tók til máls umdæmisstjóri Óskar Guðjónsson.
Dregið var í happdrætti og fóru nokkrir hepnir heim með rauðvínsflösku.
Sviðaveisla Jörfa er ein af stærri fjáröflunarleiðum klúbbsins og rennur ágóðinn að þessu sinni til langveikra barna.
Sjá myndir í myndasafni