Jólastuðningur Kiwanisklúbbsinns Jörfa í Árbæ og Grafarholti.

22.12.2018

Það er venja félaga í Kiwanisklúbbnum Jörfa í Árbæ, að leita til fyrirtækja um samvinnu við að styðja við bakið á þeim sem minna mega sín nú fyrir jólin. Úthlutun á matarkassa er í samvinnu við séra Þór Hauksson sóknarprest í Árbæjarkirkju og séra Karl Matthíasson prest  Grafarholti
Eftirtalin fyrirtæki sáu sér fært að taka þátt í þessu styrktar verkefni , Vífilfell, Júlíus Jónsson, ÍSAM, MS, Rekstrarvörur, Ísfugl, Nói – Sírius, O. Johnson & Kaaber, Gæðabakstur, Harðfisksalan og Matvæladreifing. Fá þau bestu þakkir fyrir.
 

Kiwanisfélagar sjá um að skipta vörunum bróðurlega niður eftir fjölskyldustærðum og aka þeim til viðtakanda.

Alls voru þetta 11 aðilar sem fengu matarkassa með ýmsu góðgæti.

Þeir sem bera hitann og þungan af jólastuðningsverkefninu hjá Kiwanisklúbbnum Jörfa, er fjáröflunar og styrktar nefnd klúbbsins.

Kiwanisklúbburinn Jörfi óskar öllu Kiwanis fólki nær og fjær sem og öðrum landsmönnum gleðilegra jóla með þökk fyrir stuðninginn á árinu sem er að líða.