Jólafundur og konukvöld

15.12.2018

Jólafundur Jörfa haldinn á Grandhótel  14.12.2018. Forseti setti fund kl 19.05 og bauð félaga,eiginkonur og gesti velkomna á jólafund Jörfa. Þetta væri fundur númer 780

Góð mæting var á jólafundinn.  Mættir voru 18 félagar og 23  gestir

Fundurinn hófst með jóla borðhaldi .

Tónlistahópur frá Suzuki skólanum  fluttu jólalög og kom öllum í jólaskap með fallegum fiðluleik .

Karl Matthíasson prestur  Grafarholti Guðríðarkirkju hélt hátíðarræðuna .

Félagi okkar hann Friðjón  fór með gamanmál og fór á kostum eins og honum einum er lagið .

Fundi slitið kl 21.40