Fjölskyldufundur 12.nóvember 2018

13.11.2018

Fjölskyldufundur, með öðru sniði en vanalega. Haldinn hjá Spilavinum Faxafeni 12.nóvember.Fundurinn hófst með pizzu veislu. Að spila saman er nauðsyn fyrir allar fjölskyldur og hér gafst gott tækifæri til að kynnast nýjum möguleikum í takt við tímann. Eftir matinn sá starfsfólk spilavina um að leiðbeina okkur í spilum  sem voru við allra hæfi. Allir skemmtu sér konunglega en þarna voru mættir 33 gestir ásamt Jörfafélögum.