Almennur fundur 8.jan 2018

09.01.2018

Fyrsti fundur Jörfa á árinu 2018 var haldinn að Bíldshöfða 12 8.janúar. Þetta var almennur fundur með fyrirlesara. Dagskrá fundarins var með hefðbundnu sniði. Mættir voru 21 félagi og einn gestur. Fyrirlesari var Sölvi Sveinsson fyrrum skólameistari og sagði hann frá ferðalagi sínu til Írans í máli og myndum. Var þetta mjög fróðlegt og skemmtilegt erindi hjá Sölva.