Andlát

28.08.2017

Björgvin H Gunnarsson Jörfafélagi  er látinn

Hann lést í Reykjavík  24.ágúst 2017. Björgvin  gekk í Jörfa 1988 og var alla tíð öflugur Kiwanismaður. Hann gegndi fjölmörgum embættum fyrir klúbbinn var meðal annars forseti Jörfa 1993-1994.og féhirðir 1989-1990. Það er missir af góðum félaga og minnumst við hans með hlýhug. Eftirlifandi eiginkona Björgvins er Borghildur H Flórentsdóttir og  sendum við henni  samúðarkveðjur.