Fjölskyldufundur Jörfa

15.11.2016

Fundur hjá Kiwanisklúbbnum Jörfa var haldinn mánudaginn 14. nóvember.
Þetta var fjölskyldufundur, en með öðru sniði en vanalega.
Hann var haldinn í húsnæði Spilavina í  Faxafeni. Fundurinn hófst á hefðbundnum tíma kl. 19:00  með  pizzaveislu.  Að spila saman er nauðsyn fyrir allar fjölskyldur og þarna gafst gott tækifæri til að kynnast nýjum möguleikum í takt við tímann. Eftir matinn sá starfsfólk spilavina um að leiðbeina okkur í spilum  sem voru við allra hæfi. Þetta var tilraun Jörfa til að breyta til með fundagerð svo ná megi til yngra fólks  með ekta fjölskyldufundi. Þetta tókst mjög vel og eldri sem yngri skemmtu sér vel saman.

GHG