Félagsmálafundur Jörfa

20.10.2014
 714.fundur Jörfa haldinn 20. okt. 2014 í Kiwanis salnum Bíldshöfða 12  
Þetta var félagsmálafundur Jörfa og fyrsti fundur er Jörfi heldur í Kiwanis salnum að Bíldshöfða. Mættir voru 25 félagar og á fundinum voru reikningar félagsjóðs og styrktarsjóðs fyrir síðasta starfsár samþykktir svo og fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár. Forseti Friðjón Hallgrímsson afhenti öllum nefndarformönnum skipunarbréf. 
 
 Á fundinum voru ýmis mál rædd og farið með gamanmál. Félagar eru ánægðir með að vera komnir með fundi sína í Kiwanis salinn að Bíldshöfða og leggst starfið framundan vel í menn.
 
GHG