Hjálma afhending

06.05.2014
Þessa dagana eru Jörfa félagar ásamt öðrum Kiwanisklúbbum að gefa hjálma til barna  sem eru að ljúka 1.bekk  í grunnskóla .Þetta verkefni er í samstarfi með  Eimskipafélagi Íslands. Í þessu samstarfi hafa yfir 45 þúsund börn fengið þessa gjöf .

Kiwanis International færði Eimskipafélaginu viðurkenningu fyrir sitt framlag í þessu verkefni. Þetta verkefni Kiwanis og Eimskipafélagsins hefur vakið mikla eftirtekt í hreyfingunni á heimsvísu.
Það er alltaf gaman á vorin þegar börnin fara um götunar á hjólum sínum, hjólaskautum eða brettum  með hjálmana frá okkur. Gangi okkur öllum vel í þessu verkefni sem við erum svo stolt af.