Almennurfundur Jörfa

18.03.2014
 Fundur nr. 708 í Kiwanisklúbbnum Jörfa. Fundurinn  haldinn á Broadway við Ármúla 17.mars 2014.Þetta var almennur fundur með fyrirlesara. Dagskráin var með hefðbundnu sniði.
Fyrirlesari kvöldsins var Ingrid Kuhlman 

 Ingrid Kuhlman er þjálfari og ráðgjafi. Hún er jafnframt framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar.         Frá 1994-1999 starfaði hún við kennslu í eigin skóla í Hollandi. Ingrid hefur skrifað ótal greinar í erlend og íslensk tímarit   meðal annars  um fræðslumál, sjálfstraust, samskipti, tímastjórnun, markmiðasetningu,  hamingju og streitu.

Flutti hún afar skemmtilegt erindi um hamingjuna og hvernig hún er mæld.

 

GHG