Jörfafélagar pakka Jólasælgæti

11.11.2013
 Þann 10.nóv. komu Jörfafélagar saman og pökkuðu jólasælgæti í 500 kassa,vel var mætt og gekk þetta eins og í sögu, enda allur undirbúningur hjá fjáröflunar- og styrktarnefnd Jörfa til fyrirmyndar Salgætissala Jörfa er ein af stærri fjáröflunum klúbbsins og rennur allur ágóði í styrktarsjóð Jörfa.

Kassinn kostar kr. 5.000

 

Í Kiwanisklúbbnum Jörfa eru 33 félagar sem vinna saman í anda Kiwanishreyfingarinnar. Helstu fjáraflanir Jörfa eru sviðaveisla í október, þar sem ágóði rennur til Umhyggju, félags til styrktar  langveikum börnum, sala á þessum salgætiskössum nú fyrir jólin og blómasala með útkeyrslu á konudaginn.

Styrkveitingar á síðasta starfsári voru alls rúmlega  ein milljón króna. Auk Umhyggju veitti Jörfi einstaklingum og stofnunum styrki. Jörfi tekur þátt í alheimsverkefni Kiwanis og UNICEF til að útrýma stífkrampa. Þá voru gefnar 13 matarkörfur fyrir jólin til þurfandi fjölskylda í Árbæjarsókn. Jörfi er auk þessa  með þrjú börn í fóstri í barnaþorpum SOS, Í El Salvador, á Haítí og á Indlandi..

 

Jörfi heldur úti öflugri og lifandi heimasíðu þar sem hægt er að fylgjast með starfsemi  klúbbsins, skoða myndir, eða hafa samband.

Myndir