Jörfafélögum fjölgar

05.02.2013
 689.fundur Jörfa var haldinn á Broadway við Ármúla mánudaginn 4.febrúar 2013.Þetta var félagsmálafundur með hefðbundinni dagskrá og skýrsluskilum nefndarformanna.Jörfafélagar tóku á móti nýjum félaga Njáli H Jóhannssyni og var hann boðinn velkominn í klúbbinn. Ævar Breiðfjörð sá um innsetninguna en meðmælendur Njáls voru þeir Gunnar Ó. Kvaran og Ingólfur Helgason.Þess má geta að svæðisstjóri Freyjusvæðis Snjólfur Fanndal sat fundinn og flutti Jörfafélögum fréttir frá  Freyjusvæði og umdæminu.
 

 
 
GHG