Fréttir frá starfi Jörfa í vetur

07.01.2012
 Það hefur verið góð mæting á fundi Jörfa  það sem af er vetri. 

Stjórnarskiptafundur Jörfa  var  haldinn laugardaginn 1.október í Ýmishúsinu við Skógarhlíð. Um 50 manns nutu góðra  veitinga og áttu saman skemmtilega kvöldstund. 

Á fyrsta fundi   voru reikningar lagðir fram og samþykktir auk þess sem fjárhagsáætlun tímabilsins var samþykkt.

Hin árlega sviðaveisla Jörfa var haldin laugardaginn 22.okt. í Kiwanishúsinu Engjateigi 11 Þátttakan var mjög góð eða um 170 manns .  Um 300 vinnustundir fóru í þetta verkefni hjá Jörfafélögum.

Fjölskyldufundur var haldinn í Kiwanishúsinu 31.október 2011 Mættu  22 félagar og 49 gestir. Fulltrúi frá Rauðakrossinum Þór Gíslason  var með kynningu á starfsemi Rauðakrossins.

Mánudaginn 28.nóv. s.l.  var félagsmálafundur með hefðbundinni dagskrá. Mættir voru 24 félagar og 2 gestir. Snjólfur Fanndal  svæðisstjóri  Freyjusvæðis og Sigurjón Pálsson svæðisstjóri  Óðinssvæðis.  Snjólfur sagði  frá starfi klúbba í Freyjusvæði  og frá síðustu svæðisráðstefnu. Sigurjón sagði frá starfinu í Óðinssvæði. Þess má geta að Sigurjón Pálsson er fyrrverandi  félagi í Jörfa en þar hóf hann sinn feril í Kiwanis . Það var mjög ánægjulegt fyrir Jörfafélaga að fá Sigurjón og Snjólf í heimsókn.

 Á almennum fundi 12.des var Magni Már Bernharðsson fyrirlesari 

Jörfafélagar pökkuðu sælgæti niður í 500 kassa til að selja fyrir jólin. Viðtökurnar voru frábærar. Kiwanisklúbburinn Jörfi vill þakka fyrir þessar frábæru viðtökur og stuðninginn.   Í þetta fóru 330 vinnustundir og í styrktarsjóð  komu  700.000 kr.

Jólafundur Jörfa var haldinn 16. des.2011 í Glersalnum Salavegi 2 Kópavogi. Friðjón Hallgrímsson var með upplestur. Séra Þór Hauksson flutti jólahugvekju eins og undanfarin ár. Kiwanisklúbburinn Jörfi færði Umhyggju  félag langveikra barna  200.000 kr. styrk sem var ágóði af sviðaveislu Jörfa í haust. Hulda Guðmundsdóttir tók við styrknum fyrir hönd Umhyggju. Þá fékk Baldur Árnason silfurstjörnuna fyrir frábært starf fyrir Jörfa.

Rétt fyrir jólin afhentu svo Jörfafélagar 12 matarkörfur til  bágstaddra fjölskyldna í Árbæjarhverfi  fyrir  að andvirði 280.þúsund.

Jörfafélagar óska að lokum öðrum Kiwanisfélögum og mökum þeirra gleði og gæfu á nýju ári og þakkar gott samstarf á liðnu ári.

 

GHG