Jólasælgæti Jörfa 2010 uppselt

10.11.2010
Eins og áður hefur komið fram pökkuðu Jörfafélagar sælgæti niður í 400 kassa til að selja fyrir jólin. Viðtökurnar voru frábærar og þrem dögum eftir að félagar byrjuðu sölu er allt uppselt.
Kiwanisklúbburinn Jörfi vill þakka fyrir þessar frábæru viðtökur og stuðninginn við styrktarverkefni klúbbsins.
Kiwanis eru alheimssamtök sjálfboðaliða sem hafa að markmiði að bæta heiminn með þjónustu í þágu barna.
Kiwanishreyfingin var stofnuð árið 1915 og hefur á síðari árum breiðst út um allan heim. Í dag eru félagar alls rúmlega 340.000 í 9.000 klúbbum, sem dreifðir eru um 74 þjóðlönd í öllum heimsálfum. Kiwanisklúbburinn Jörfi átti 35 ára afmæli á þessu ári, þar eru 31 félagi sem vinna saman í anda Kiwanishreyfingarinnar. Helstu fjáraflanir Jörfa eru sviðaveisla fyrsta vetrardag, sælgætissala fyrir jólin og blómasala á konudaginn.
Helstu styrktarverkefni á síðasta starfsári voru: Umhyggja, Ljósið, Systkinasmiðjan og HL-Stöðin. Þá voru gefnar 22 matarkörfur fyrir jólin til þurfandi fjölskyldna í Árbæjarhverfi. Jörfi hefur um árabil verið með tvö börn í fóstri í SOS þorpunum. Styrkveitingar voru alls 1.850.000 krónur.
Félagslífið er blómlegt, fundir tvisvar í mánuði yfir veturinn, gjarnan með fyrirlesara, gróðursetningarferð, sumarútilega og árshátíð Jörfa. 
Jörfi heldur úti öflugri og lifandi heimasíðu þar sem hægt er að fylgjast með störfum klúbbsins og skoða myndir, eða hafa samband.
 
 
GHG