Sumarhátíð Jörfa

05.07.2010
Sumarhátíð Jörfa var haldin núna um helgina, 2.-4.júlí.  Að þessu sinni í Hafnarskógi gegnt Borgarnesi. Þátttaka var heldur minni en oftast áður.  Fótbrot, veikindi, ættarmót og ýmsar aðrar fjölskylduskuldbindingar settu strik í reikning margra.
Veður var gott, hlýtt en dálítill andvari.  Dálítil skúr vökvaði okkur rausnarlega um miðjan föstudag en annars hélt úrkoman sig í virðingarverðri fjarlægð frá okkur.  T.d. flóðrigndi fyrir hádegi í Borgarnesi á sunnudag meðan varla kom dropi á okkur. 
Föstudagskvöldið buðu skemmtinefndarmenn upp á súpu sem ber nafnið Skólastjórasúpa.  Ekki var innihaldslýsing gefin upp en hún dugði upphituð í hádegisverð daginn eftir.
Á laugardag  heimsóttum við Hvanneyri og fengum þar fína leiðsögn um staðinn, sögu hans sem skólasetur og skoðuðum Búvélasafnið, Ullarsetrið og nýtísku fjós staðarins.  Þaðan var haldið í Ferjukot og nutum leiðsagnar og frásagnaríþróttar Þorkels Fjeldsted bónda, sem leiddi okkur um Laxasafnið þar sem getur að líta einstakar minjar um laxveiðar í meira en heila öld.  Þarna eru munir frá laxveiðum breskra lorda og lávarða sem sóttu í að veiða í hinum gjöfulu Borgfirsku ám þegar fyrir 1900.  Þá er gamla sjoppan í Ferjukoti og eldri kynslóðir muna vel, enn nánast í óbreyttri mynd og geymir gömul vörumerki og muni sem rótuðu upp gömlum minningum.  Einnig fengum við að skoða gamla íbúðarhúsið, reist um 1890 og er nánast enn í óbreyttri mynd sem hlýtur að teljast einstakt.
Um kvöldið var sest að veisluborði í Mótel Venus og snætt gómsætt lamb.  Síðan sungið og spjallað í samkomutjaldi Jörfa allt fram til háttatíma ráðsettra Jörfafélaga en  heldur hefur hann færst fram á síðari árum.  
Í heild einkenndist helgin af þægilegri samveru góðra félaga og yngsta kynslóðin naut sín vel í skógarkjarrinu og fjörunni.