Konudagsblóm Jörfa

21.02.2010

Jörfi vill þakka frábærar undirtektir vegna konudagsblómasölu. Blómasala Jörfa á konudaginn ár hvert er ein af helstu fjáröflun klúbbsins en allur ágóði fer í styrktarsjóð.

Ávinningurinn af þessu er ótvíræður; ánægðar (eigin)konur og fjárstyrkur til líknarmála.

Verðið var kr. 3000 fyrir vöndinn.  Háttur Jörfafélaga við sölu er sá sami, selt er fyrirfram og skráð niður nafn og heimilisfang viðtakanda og er blómunum síðan ekið heim á konudaginn milli kl. 10-13.00.

 

Hafið þökk fyrir.