Jörfi styrkir Ljósið og Systkinasmiðjuna

12.02.2010

Í dag voru Jörfafélagar á ferð og afhentu styrki.

Ljósið, þar sem Erna Magnúsdóttir  forstöðumaður tók á móti okkur og bauð okkur í kaffi og sýndi okkur húsakynni og sagði okkur frá starfseminni, sem var afar fróðlegt.

Þarna var líka hún Adda (Arndís Jónsdóttir), en hún er mikið að vinna  þarna  sem sjálfboðaliði.

Við afhentum Ernu svo gjafabréfið, en þarna var hópur fólks í föndri sem fylgdist með.

 

Systkinasmiðjan. Fórum svo á skrifstofu Hjálparstofnunar Kirkjunnar þar sem Vilborg starfar.

Þar hittum við tvo leiðbeinendur hjá Systkinasmiðjunni, Vilborgu Oddsdóttur og Hönnu Björnsdóttur

 Við áttum gott spjall við þær og afhentum þeim gjafabréfið.