Sumarferð Jörfa í Þakgil 3.-5. júlí 2009.

05.07.2009

Daganna 3.-5. júlí var hin árlega fjölskyldu og sumarferð Jörfa.

Að þessu sinni var farið í Þakgil.Kötlufélagar slógust í hópinn.

Helgin var nokkuð rigningarsöm en þrátt fyrir það skemmtu allir sér vel. Á laugardagskvöldið var sameiginlegur matur sem matgæðingar Jörfa sáu um og eftir matinn var kvöldvaka í hellinum þar sem félagar og gestir tóku lagið.