Heiðmörk

10.06.2009

Hin árlega gróðursetningarferð Jörfa í Heiðmörk var 10.júní.

Veðrið lék við okkur og fjölmenntu Jörfafélagar ásamt fjölskyldum sínum.

Eftir að búið var að gróðursetja og taka til var boðið upp á grillaðar pylsur og gos,smáum og stórum til mikilla ánægju. Einnig var boðið upp á ís og Nóa konfekt.

Félagi okkar Gunnar Kvaran lék á harmonikku af sinni alkunnu snilld fyrir hópinn.