Vinnustaðafundur Slökkvistöð Höfuðborgarsvæðis
17.03.2009Fundurinn þann 16. mars var haldinn hjá slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins í slökkvistöðinni í Hafnarfirði.
Þar tók Jörgen Valdimarsson (Jörgenssonar heitins) á móti okkur sýndi tæki og tól og kynnti starfsemina, þetta var hinn fróðlegasti fundur og mættu við Jörfafélagar gera meira af því að halda fundi á vinnustöðum og fræðast um þau störf er menn eru að vinna við hinar ýmsu aðstæður.
