Konudagsblóm

04.02.2009
Nú er Bóndadagurinn afstaðinn og eflaust hefur konan gert eitthvað fyrir þig á þeim degi. Nú er komið að því að við stöndum okkur. Konudagurinn er sunnudagurinn 22. febrúar n.k. og hvað er þá betur við hæfi en að gefa konunni blómvönd Kiwanisklúbburinn Jörfi hefur um árabil selt ferska og fallega blómvendi í fjáröflunarskyni og eru þeir sendir heim á konudaginn milli kl. 10 – 13.
 

Verðið er kr. 2500 fyrir vöndinn.  Háttur Jörfafélaga við sölu er sá sami, selt er fyrirfram og skráð niður nafn og heimilisfang viðtakanda og er blómunum síðan ekið heim á konudaginn milli kl. 10-13.00.

Við viljum minna þá kiwanisfélaga og aðra er ætla að gefa blóm á konudaginn að muna eftir Jörfa.  Hægt er að panta blóm á netfangi ghelgi@centrum.is  skrá þar nafn og heimilisfang viðtakanda og nafn og kennitölu sendanda.  Greiða þarf inn á bankareikning 1175-26-8776  kt. 431178-0449 til staðfestingar á pöntun. Pöntun þarf að berast í síðastalagi 19 febrúar

Verðið er kr. 2500 fyrir vöndinn
Allur ágóði rennur í styrktarsjóð Jörfa.

Með kiwaniskveðju.

Kiwanisklúbburinn Jörfi