Jólasælgæti
02.12.2008Eins og undanfarin ár hafa Jörfafélagar selt sælgæti fyrir jólin til eflingar styrktarsjóðs Jörfa.
Góðir samningar hafa náðst við Nóá-Síríus hf og hafa Jörfafélagar fengið aðstöðu þar til að pakka sælgætinu, eða réttara sagt raðað því í plastbox sem kaupendur geta notað til annars brúks er tómt er orðið.
Jörfa félagar hafa verið að selja þessi box á 3000 kr st. og salan verið frá 200-300 box á ári.
