Andlát

20.11.2008
Mánudaginn 17.nóvember, andaðist Valdimar Jörgensson
vinur okkar og félagi í Kiwanisklúbbnum Jörfa  Valdimar var einn af máttarstólpum Jörfa og Kiwanishreyfingarinnar. 
     

   Valdimar Jörgensson var fæddur 30.desember 1943.
   Eftirlifandi kona Valdimars er Arndís Jónsdóttir.

 

Valdimar hefur verið félagi í Jörfa frá 1987 og gengt þar öllum embættum fyrir klúbbinn.

Valdimar var svæðisstjóri Eddusvæðis 1998-1999  og Umdæmisstjóri Íslands-Færeyjar  2002-2003

 

Útför Valdimars verður frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 27. nóvember kl. 15:00.