Stjórnarfundur
27.11.2020Stjórn Kiwanisklúbbsins Jörfa hélt stjórnarfund með fjarfundarbúnaði föstudaginn 27.nóv. 2020. Tókst hann nokkuð vel, af 11 stjórnarmönnum tókst 9 að tengjast á Zoom-fundi í tölvum þannig að þeir bæði sáust og heyrðu hver í öðrum. Meira að segja tóku þeir félagar Friðjón og Gunnar lagið á nikkurnar öllum til óblandinnar ánægju. Þar var ákveðið að vegna aðstæðna í þjóðfélaginu yrði ekki af jólafundi og konukvöldi sem áformað var 11.desember. Reynt yrði að boða til nýjársfagnaðar þegar tækifæri gæfist og hættulítið væri vegna veirunnar.
Upplýst var að Fjáröflunar - og styrktarnefnd hefði staðið fyrir söfnun og pökkun á jólasælgæti, alls 252 kössum og þeir hefðu allir selst nánast strax. Þá hefur nefndin hafið undirbúning á söfnun í matarkörfur til úthlutunar fyrir jólin eins og venjulega.