Jólafundur Jörfa

19.12.2017

Jólafundur Jörfa var haldinn 8.desember 2017 í Norræana húsinu. Félagar og makar snæddu þar gómsæta rétti sem listakokkurinn Sveinn Kjartansson töfraði fram. Bernhard forseti ahenti Guðjóni Benediktssyni afmælisgjöf og Sigrúnu konu hans blóm, en Guðjón átti 80 ára afmæli 31.okt. s.l. Kristín Steinsdóttir skáldkona fór á kostum og las upp úr nýrri bók sinni „Ekki vera sár“. Þá flutti sr. Þór Hauksson okkur jólahugvekju og Friðjón Hallgrímsson fór með gamanmál.

Myndir hér