649 fundur Jörfa sem var félagsmálafundur

02.11.2010
649 fundur Jörfa sem var félagsmálafundur var haldinn í Kiwanishúsinu 1.nóvember 2010.
Forseti Valur Helgason setti fund kl.19.30 og bauð félaga og gest velkomna til fundar.
Mættir voru 22 félagar og einn gestur.
Dagskráuin var hefðbundin en á þessum fundi voru reikningar klúbbsins lagðir fram og samþykktir einnig var fjárhagsáætlun klúbbsins samþykkt.
 
 
Friðjón Hallgrímsson sagði frá sínu lífshlaupi og félagar fóru með vísur og gamanmál er búið var að ræða  þau mál sem klúbburinn er að vinna að.