Þjóðhátíð

29.03.2009

Árlega halda Jörfafélagar ásamt eiginkonum og gestum þjóðhátíð í Ölvusborgum.

Félagar gista í bústöðum en veislan sjálf er haldin í Kiwanishúsinu í Þorlákshöfn.

Matgæðingar klúbbsins undir stjórn Péturs fóru á kostum við að elda og reiða fram ekta íslenskan mat.

Þá voru gestir okkar úr Árborg, Hjörtur Þórarinsson og Bjarni Harðarson  ekki síðri í þjóðlegum íþróttum, sagnaskemmtan og kveðskap.

Á laugardag var haldin svæðisráðsstefna Eddusvæðis og þar var Jón Jakob kjörinn  svæðisstjóri 2010-11.