Hjálma afhending Jörfafélaga
21.04.2017Þessa dagana eru Jörfa félagar ásamt öðrum Kiwanisklúbbum að gefa hjálma til barna sem eru að ljúka 1.bekk í grunnskóla .Þetta verkefni er í samstarfi með Eimskipafélagi Íslands. Þetta hefur vakið mikla eftirtekt í hreyfingunni á heimsvísu.
Það er alltaf gaman á vorin þegar börnin fara um götunar á hjólum sínum, hjóla skautum eða brettum með hjálmana frá okkur. Gangi okkur öllum vel í þessu verkefni sem við erum svo stolt af.