Almennur fundur hjá Jörfa.

03.02.2015
 Almennur fundur hjá Kiwanisklúbbnum Jörfa sem var númer 721 var haldinn 2.febrúar s.l í Kiwanis húsinu Bíldshöfða 18.

Þetta var fjölmennur fundur með fyrirlesara Guðmundi Óla Scheving.

Flutti hann fróðlegan fyrirlestur um meindýravarnir og myglusvepp. Á eftir svaraði hann fjölmörgum spurningum frá fundarmönnum. Á fundinn mætti líka Umdæmisstjóri Gunnlaugur Gunnlaugsson.

 

GHG