
Jörfa fundur nr.668
Þetta var félagsmálafundur með hefðbundinni dagskrá. Mættir voru 24 félagar og 2 gestir. Snjólfur Fanndal svæðisstjóri Freyjusvæðis og Sigurjón Pálsson svæðisstjóri Óðinssvæðis. Snjólfur sagði frá starfi klúbba í Freyjusvæði og frá síðustu svæðisráðstefnu. Sigurjón sagði frá starfinu í Óðinssvæði. Þess má geta að Sigurjón Pálsson er fyrrverandi félagi í Jörfa en þar hóf hann sinn feril í Kiwanis . Það var mjög ánægjulegt fyrir Jörfafélaga að fá Sigurjón og Snjólf í heimsókn .
Jörfi vill þakka þessum heiðursmönnum fyrir heimsóknina.
GHG
Jólasælgætinu pakkað
Í dag pökkuðu Jörfafélagar jólasælgæti. Pakkað var í 500 kassa sem eru 15 l plastkassar. Sælgætið er frá Nóa Síríus. Mikil eftirspurn hefur verið í þessa kassa, sem dæmi eru nú þegar seldir 350 kassar. Þeir sem hafa áhuga á góðum kaupum og styrkja gott málefni hafi samband við Jörfafélaga.
Hér eru myndir.
GHG
Fjölskyldufundur Jörfa 2011
Sviðaveisla hjá Jörfa
Sviðaveisla Jörfa 2011
Sviðaveislan undirbúin
Stjórnarskipti hjá Jörfa
Félagsmálafundur hjá Jörfa, fundur númer 663 var haldinn 5.sept.s.l.
Þetta var skýrsluskilafundur og fyrsti fundur eftir sumarleyfi. Vel var mætt og verður ekki sagt annað en að vel sé unnið í klúbbnum allar nefndir skiluðu skriflegum skýrslum og reikningar bæði félagssjóðs og styrktarsjóðs sýna rétta stöðu frá degi til dags. Framundan er Umdæmisþingið á Höfn þar sem Jörfi mun eiga sína fulltrúa, því næst er stjórnarskiptafundur er verður 1.október. Búið er að skipa í allar nefndir klúbbsins ,verið er að ganga frá félagatalinu og dagskrá vetrarins er uppsett og Jörfamenn tilbúnir að takast á við starfið á komandi vetri.
GHG
Sumarferð Jörfa 2011
Gróðursetningarferð í Heiðmörk
Sala á K-lyklinum gekk vel hjá Jörfamönnum.
Alls seldust 1200 lyklar sem er veruleg aukning frá 2008. Alls fóru í þetta yfir 200 vinnustundir.
Því miður voru margir félagar uppteknir eða fjarverandi söludagana. Hefðum annars getað selt fleiri. Viðtökur fólks voru mjög góð og ljóst að við og verkefnin sem við styrkjum njóta mikillar velvildar. Nokkrir félagar skáru sig úr sem öflugir sölumenn, Leifur og Bragi við Heiðrúnu, Jón Jakob í Húsgagnahöllinni og Bjargmundur í Bónus. En allir stóðu sig vel og höfðu á orði að þetta hefði verið skemmtilegt verkefni. Það er afstaða sem skiptir máli.
Haraldur F. Jörfa
Jörfi afhendir hjálma
Stjórnarkjörsfundur, styrkveitingar og silfurstjarna
Fundurinn haldinn í Ými 29.apríl s.l. Forseti Valur Helgason setti fund kl.19.36 bauð félaga og eiginkonur velkomna.Formaður móttökunefndar Ingólfur Helgason kynnti mætingu. Mættir voru 18 félagar 7 höfðu boðað forföll 17 gestir (eiginkonur). Einn félagi hafði átt afmæli frá síðasta fundi Ingólfur Helgason varð 63ja ára.
Þá gert matarhlé.Eftir þriggja rétta frábæran mat með lambakjöt í aðalrétt,var fundinum framhaldið. Þar sem ekki hafði komið mótframboð eða athugasemdir við tillögu uppstillinganefndar var sú uppstilling kynnt. Þar sem Pétur var fjarverandi kynnti Valur næstu stjórn:
Þjóðhátíð Jörfa 2011
Helgina 1.-3. apríl héldu Jörfamenn sína árlegu Þjóðhátíð í Ölfusborgum. Jörfafélagar og eiginkonur gistu þar í bústöðum . Laugardagurinn var notaður til matseldar, gönguferða og verslunarferða. Um kvöldið var farið með rútu til Þorlákshafnar þar sem gleðin fór fram í Kiwanishúsi þeirra Ölversmanna. Á matseðli voru svið, hrossabjúgu,og hrossakjöt að hætti Jörfamanna. Skemmtiatriði frá heima- og Jörfamönnum. Jörfafélagarnir þeir Gunnar Kvaran og Friðjón Hallgrímsson sáu um harmonikku spil. Var þetta hin besta skemmtun.
GHG
Sameiginlegur fundur klúbba í Reykjavík.
Sameiginlegur svæðisráðsfundur Eddu og Þórssvæðis
Jörfi heimsækir Alcan á Íslandi hf.
Jörfafélagar í heilsubótargöngu.
Hvatning til Jörfafélaga í heilsubótargöngu.
Jörfafélagar glaðir ganga
á góðum degi með bros á vör.
Í hópinn vilja fleiri fanga
félagar, sláist með í för.
Enga leti, lyfta fótum
labba góðum vinum með.
Lyfta rassi úr sófum ljótum
liðka skrokk og hressa geð.
Höfundur
Guðrún Sigurbjörnsdóttir.
Samantekt um hjálma frá Kiwanis og Eimskip
Konur, til hamingju með daginn.
Ávinningurinn af þessu er ótvíræður; ánægðar (eigin)konur og fjárstyrkur til líknarmála.
Jörfi þakkar öllum þeim sem komu að þessu á einn eða annan hátt og sérstakar þakkir til fjáröflunar og styrktarnefndar klúbbsins.
GHG
Konudagsblóm frá Jörfa
Fréttayfirlit frá Jörfa
654 fundur Jörfa
Gleðilegt nýtt ár
Jólafundur,styrkur,silfurstjarna og afmæli
Jörfi styrkir Umhyggju
Almennur fundur 6.des.2010
650 fundur Jörfa sem var almennur fundur var haldinn í Kiwanishúsinu 6.des. 2010.
Forseti Valur Helgason setti fund kl.19.30 og bauð félaga og gesti velkomna til fundar.
Formaður móttökunefndar Ingólfur Helgason skýrði frá mætingu, mættir voru 20 félagar og 2 gestir en fimm félagar boðuðu forföll.
Ritari las fundargerðir tveggja síðustu funda og voru þær samþykktar.
Leifur Ásgrímsson formaður afmælisnefndar kom og tilkynnti hvaða félagar hefðu átt afmæli frá síðasta fundi en það voru þeir Guðlaugur Helgason,Ingi Viðar Árnason, Bjargmundur Sigurjónsson, Sigursteinn Hjartarson og Björgvin Gunnarsson.
Eftir matarhlé kynnti Haraldur Finnsson fyrirlesara kvöldsins Atla Jósefsson lífeðlisfræðin er starfar við svefnrannsóknir á Landsspítalanum.
Atli flutti mjög fróðlegt erindi sem fjallaði um svefn og svefnrannsóknir.
Atli svaraði fjölmörgum spurningum frá fundarmönnum og í lokin þakkaði forseti honum fyrir og færði honum Jörfafána að gjöf.