Hjálpum börnum heimsins
09.05.12

Stjórnarkjörsfundur Jörfa haldinn í Ýmirshúsinu

Stjórnarkjörsfundur Jörfa haldinn í Ýmirshúsinu
Fundurinn var haldinn 4.maí og hófst kl 19.30  Mættir  voru 21 félagi  ásamt eiginkonum.             
Pétur Sveinsson kynnti  stjórn klúbbsins fyrir starfsárið 2012-2013 Hafsteinn Sigmundsson féhirðir kynnti  fjárhagstöðu klúbbsins. Uppgjör á Engjateigi  11  er á næsta leiti að sögn Hafsteins. Ingólfur Helgason formaður skemmti  og ræktunarnefndar sagði frá  fyrirhugaðri  gróðursetningarferð  6.júní og sumarferðinni  að Nesi  10-12 ágúst.  Ævar Breiðfjörð  var heiðraður með Silfurstjörnunni  fyrir frábært starf í þágu klúbbsins. Þá var nokkrum eiginkonum  þeirra klúbbfélaga sem átt höfðu   stórafmæli á starfsárinu færðir blómvendir. Jörfafélagar og eiginkonur áttu gott kvöld saman.
 
GHG
 
 

Meira


28.04.12

Lög Kiwanisklúbbsins Jörfa.

Lög Kiwanisklúbbsins Jörfa.
 Fundur nr.678 í Kiwanisklúbbnum Jörfa var haldinn í Glersalnum Salavegi 2 Kópavogi mánudaginn 23.apríl 2012. Þetta var hefðbundinn  félagsmálafundur og ýmis mál voru rædd.

Stöðugleiki og festa samfara lífi og hugmyndaauðgi lýsa Kiwanisklúbbnum Jörfa vel. Fastir liðir eru eins og venjulega; klúbbfundir, stjórnarfundir og störf nefnda. Flutningur frá Engjateigi 11 í Glersalinn við Salaveg í Kópavogi er afbrygði en þótt húsakinnin séu ný er veitingaviðurgjörningurinn sá sami því klúbburinn fékk inni hjá Sigurði sem var veitingamaður í Engjateigi 11 svo stöðugleikanum er við haldið.

Meira


24.03.12

Svæðisráðsfundur Freyjusvæðis á Akranesi 24.mars 2012

Svæðisráðsfundur Freyjusvæðis á Akranesi 24.mars 2012
 Fundurinn haldinn í Safnahúsinu á Akranesi og hófst kl 10.00 Dagskrá fundarins var hefðbundinn  og flutti svæðisstjóri  Snjólfur Fanndal og forsetar skýrslur sínar. Umdæmisstjóri  Ragnar Örn Pétursson mætti á fundinn og fór yfir það helsta sem er á döfinni í umdæminu og svaraði hann spurningum frá fundarmönnum. Fundurinn var vel sóttur og var að öllu leyti til fyrirmyndar.
 
GHG

Meira


19.02.12

Konur, til hamingju með daginn.

Konur, til hamingju með daginn.
 Kiwanisklúbburinn Jörfi vill þakka frábærar undirtektir vegna konudagsblómasölu. Blómasala Jörfa á konudaginn ár hvert er ein af helstu fjáröflun klúbbsins en allur ágóði fer í styrktarsjóð.
Ávinningurinn af þessu er ótvíræður; ánægðar (eigin)konur og fjárstyrkur til líknarmála.
Jörfi þakkar öllum þeim sem komu að þessu á einn eða annan hátt og sérstakar þakkir til þeirra er keyptu blómvönd hjá klúbbnum.
 

Meira


06.02.12

Konudagsblómin frá Kiwanisklúbbnum JÖRFA

Konudagsblómin frá Kiwanisklúbbnum JÖRFA
 Nú í ár ber konudaginn upp á 19.febrúar og verður Jörfi með sölu á blómavöndum eins og undanfarin 15 ár, verðið er kr. 3.500 fyrir vöndinn.  Háttur Jörfafélaga við sölu er sá sami, selt er fyrirfram og skráð niður nafn og heimilisfang viðtakanda og er blómunum síðan ekið heim á konudaginn milli kl. 10-13.00.

Meira