Hjálpum börnum heimsins
19.02.12

Konur, til hamingju með daginn.

Konur, til hamingju með daginn.
 Kiwanisklúbburinn Jörfi vill þakka frábærar undirtektir vegna konudagsblómasölu. Blómasala Jörfa á konudaginn ár hvert er ein af helstu fjáröflun klúbbsins en allur ágóði fer í styrktarsjóð.
Ávinningurinn af þessu er ótvíræður; ánægðar (eigin)konur og fjárstyrkur til líknarmála.
Jörfi þakkar öllum þeim sem komu að þessu á einn eða annan hátt og sérstakar þakkir til þeirra er keyptu blómvönd hjá klúbbnum.
 

Meira


06.02.12

Konudagsblómin frá Kiwanisklúbbnum JÖRFA

Konudagsblómin frá Kiwanisklúbbnum JÖRFA
 Nú í ár ber konudaginn upp á 19.febrúar og verður Jörfi með sölu á blómavöndum eins og undanfarin 15 ár, verðið er kr. 3.500 fyrir vöndinn.  Háttur Jörfafélaga við sölu er sá sami, selt er fyrirfram og skráð niður nafn og heimilisfang viðtakanda og er blómunum síðan ekið heim á konudaginn milli kl. 10-13.00.

Meira


02.02.12

Nýir félagar í Jörfa og styrkveitingar

Nýir félagar í Jörfa  og styrkveitingar
 673 fundur Jörfa var haldinn í Glersalnum við Salaveg  í Kópavogi 30.jan. s.l.  Jörfafélagar tóku inn tvo nýja félaga þá  Svanberg Guðmundsson og Bernhard Jóhannesson. Fundurinn samþykkti þrjár styrkveitingar til einstaklinga  samtals  320 þúsund krónur.   Allir nefndarformenn skiluðu skýrslum sem sögðu okkur að  mikið  og  gott starf er unnið í Jörfa. Næsta verkefni Jörfa er sala á konudagsblómum en konudagurinn í ár er 19.febrúar n.k
 
GHG

Meira


07.01.12

Fréttir frá starfi Jörfa í vetur

Fréttir frá starfi Jörfa í vetur
 Það hefur verið góð mæting á fundi Jörfa  það sem af er vetri. 

Stjórnarskiptafundur Jörfa  var  haldinn laugardaginn 1.október í Ýmishúsinu við Skógarhlíð. Um 50 manns nutu góðra  veitinga og áttu saman skemmtilega kvöldstund. 

Á fyrsta fundi   voru reikningar lagðir fram og samþykktir auk þess sem fjárhagsáætlun tímabilsins var samþykkt.

Hin árlega sviðaveisla Jörfa var haldin laugardaginn 22.okt. í Kiwanishúsinu Engjateigi 11 Þátttakan var mjög góð eða um 170 manns .  Um 300 vinnustundir fóru í þetta verkefni hjá Jörfafélögum.

Fjölskyldufundur var haldinn í Kiwanishúsinu 31.október 2011 Mættu  22 félagar og 49 gestir. Fulltrúi frá Rauðakrossinum Þór Gíslason  var með kynningu á starfsemi Rauðakrossins.

Mánudaginn 28.nóv. s.l.  var félagsmálafundur með hefðbundinni dagskrá. Mættir voru 24 félagar og 2 gestir. Snjólfur Fanndal  svæðisstjóri  Freyjusvæðis og Sigurjón Pálsson svæðisstjóri  Óðinssvæðis.  Snjólfur sagði  frá starfi klúbba í Freyjusvæði  og frá síðustu svæðisráðstefnu. Sigurjón sagði frá starfinu í Óðinssvæði. Þess má geta að Sigurjón Pálsson er fyrrverandi  félagi í Jörfa en þar hóf hann sinn feril í Kiwanis . Það var mjög ánægjulegt fyrir Jörfafélaga að fá Sigurjón og Snjólf í heimsókn.

Meira


22.12.11

Gleðileg jól

Gleðileg jól
 Jörfa félagar óska öðrum Kiwanis félögum, fjölskyldum þeirra og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir stuðninginn á árinu sem er að líða.

Meira